27maí
Í sumar
Í sumar er nóg að ske.Næstu helgi, 3.júní, verða glæsilegir rokktónleikar í Selskógi þar sem fram munu koma m.a. Wartburg, South on Chair, Mílanó, Quiritatio sem er norskt stykki af hljómsveit og Miri.
Þetta verður örugglega mjög gaman, vonandi að Miri nái að æfa eitthvað af viti.
Óttar Brjánn staðsettur fyrir sunnan sem getur verið bras.
Síðan fylgir næst ferð okkar Mirlinga til Noregs þar sem við förum til Vesteralen.
Stórfallegt svæði.
Við spilum þar á BlaBla festival og svo stendur til að reyna að finna einhver gigg
(,,Gigs? Ja, jú hann tók nokkur gigg með okkur, hann var samt ekkert að gera sig.." )
í Bergen eða eitthvað.
Spurning hvort maður komi eitthvað heim frá Noregi aftur? Gæti náttúrulega bara farið í tónlistarskóla þar og búið hjá systur minni í Osló.
Fyrst þyrfti ég þó að fara á L.ung.A sem verður frábær í ár eins og öll önnur ár.
Miri spilar þar á tónleikum ásamt t.d. Fræ, Ghostigital, Jeff Who og Bigga.
Vonin er sú hjá okkur í hljómsveitinni að við munum nýta sumarið betur en seinasta sumar. Reyndar tókum við upp Fallegt Þorp EP plötuna okkar með Curver en samt náðum við ekki að afreka mikið.
Verður gaman að taka loksins, loksins tíma saman til að vera. gera. skapa.
Síðan er aldrei að vita nema það verði eitthvað tónleikastúss í kringum Ormsteiti eins og á síðasta ári og þá tekur maður nú kannski þátt í því.
Eins er stefnan að halda í hefð síðustu tveggja ára og spila á Menningarnótt í Reykjavík.
Svona verður sumarið 2006.
Já og síðan fer maður á Roskilde festival, alveg rétt.
Fær að sjá Bob, Clap your hands say yeah og fullt fullt fullt af góðu stöffi.
Hj.