...Byrjaði í dag. Svoleiðis ágætt. Mjög hentug miðað við það að ég sé að fara að kenna í Fellabæ og á Seyðisfirði. Margt skrýtið samt, skólinn er nýr og ferskur, ég ekki heldur þvert á móti með elstu mönnum í þessum skóla. Ég, Garðar Bobby, Hákon, Gummi og Jónas erum hluti af helvíti gömlum og góðum hóp menntskælinga þarna. Menn sem muna eftir því þegar fússball spilið var stundað af ákefð og farið var eftir réttum reglum! (Það er bannað að snúa!) Ragna systir byrjaði í dag, hún og Fanney fengu far. Fremur súrrealískt. Er annars í eingöngu svona extra-áföngum einhverjum, upp203, sál213..allt eitthvað svona smellið. Gott samt að vera loksins í frönsku eftir kl.9 á morgnana.
Annars er það bara minningartónleikar fyrir Pésa á föstudagskvöldið. Kem fram með Hár-liðinu, Miri, Tedda&Birki og svo með sjálfum mér. Síðan verður Ívar Pétur(gamall kunningi minn, þekktumst á menntaskólaárunum áður en leiðir skildust þegar hann flutti suður...) að DJ-a, það ætti að vera stuð. Snillingar að hjálpa mér að spila sóló-stöffið og ég vil þakka þeim öllum fyrir mest í heimi. Hlakka til að sjá alla á tónleikunum með ferskleika í hjarta.
23. ágúst 2006 klukkan 23:05
Hjalti Jón Sverrisson 4 athugasemdir
* Spilerí fínt, beil á öðru gigginu sem var nett óþolandi. * Hlakka ekki til að kíkja á innistæðuna á mínum bankareikningi eftir tíðar heimsóknir á ölhús bæjarins. * Sá: Skáta (magnaðir, gaman að sjá Gylfa spila með þeim) Jeff Who? (fyndnustu tveir menn sem ég hef augum litið stóðu fyrir aftan mig.. á einum tímapunkti var annar þeirra að hæðast að þeim alveg þangað til Barfly byrjaði, þá fór félaginn að syngja hástöfum með frá byrjun. Fyrr á tónleikunum hafði hann dregið upp svitalyktaeyði og byrjað að rúlla sig aðeins ferskari. Spes.) Reykjavík! Hljómsveitina semsagt. og svo Fræ og Sometime. Mínus voru á Sirkus, leist mjög vel á það Og síðan sá maður Óttar rokka með Atombation. Þrususkemmtun semsagt. * Hnerraði 6 sinnum á heimleiðinni í flugvélinni * keypti Iron & Wine disk, Bone Machine með Tom Waits og Smile DVD með honum Briani Wilson (Brjánn Vilhjálms) * keypti Chili Peppers hljóma/textabók, gott í kennslu. * Aðalkaupin voru þó án nokkurs vafa bók sem hefur að geyma nótur og texta að öllum lögum Bítlanna. Strax byrjaður að leika mér með þetta. Gaman. * Curver bauð okkur félögunum á næntís kvöld hjá sér og Kiki á Ellefunni og gaf okkur armbönd til að komast framfyrir röðina. Það var ekkert nema gaman að tjútta við hvern smellinn á fætur öðrum. Jú reyndar var þetta sjúklega þröngt. * Ég og Ívar enduðum kvöldið saman, skelltum okkur á Devitos (sem er best í heimi) og Ívar einmitt missti lífið þar um stund. Ég náði þó að vekja hann að lokum. * Bara takk fyrir stuðið.
20. ágúst 2006 klukkan 20:53
Hjalti Jón Sverrisson 1 athugasemd
munum við Mirlingar troða fram tvisvar. Komum fram á Café Amsterdam núna á fimmtudagskvöldið ásamt Lada Sport og Bertel á Grapevine Bad Taste tónleikaröðinni. Síðan er það Lækjargatan á menningarnótt þar sem við komum fram ásamt Jakobínarína, Sudden Weather Change, Mammút og eflaust fleirum.
Þannig að ef þið eruð í höfuðborginni, endilega kíkið á okkur.
16. ágúst 2006 klukkan 15:21
Hjalti Jón Sverrisson Engin athugasemd
www.jonasreynir.bloggar.is (geri ekki svona linka dæmi, alltof flókið) geturðu fundið grín og glens, flest gamalt og smellið. Undir flokknum grín meira að segja. Mjög skemmtilegt að skoða þetta. Þorsteinn Guðmunds, ég og Hjalli eitthvað krekkin' itt öpp.
15. ágúst 2006 klukkan 03:01
Hjalti Jón Sverrisson Engin athugasemd
You're really enthusiastic about the music that you like. You attempt to discover your new favourite band every week. You continually try to get your friends into the music you like, which annoys the fuck out of them, but you don't know it. At least you're not arrogant about it.
12. ágúst 2006 klukkan 01:38
Hjalti Jón Sverrisson 3 athugasemdir
Mæli með því að fólk kíki inn á www.rokk.is núna á næstunni og hlusti u.þ.b. 2000 sinnum á 1:11. Sem er lag. Með mér. Skrýtið og fyndið lag sem ég hef gaman af.
06. ágúst 2006 klukkan 22:02
Hjalti Jón Sverrisson 7 athugasemdir
Var að lesa úr nýjasta Grapevine. Umfjöllun um L.ung.A, tónleikana og almennt fyllerí unglinga hér á austurlandi.
Stel pínu bút um Miri. Alveg ágætlega sáttur með gelluna sem skrifaði þetta, hún virðist einnig sátt með mig:
Miri took the stage first and started the night off with a good tone. Fading in and out of interesting meditations, the band’s heavy and often penetrating bass almost made up for a lack of vocals, and at its best moments, the incredibly tight but laid-back instrumentals became almost transcendental.
01. ágúst 2006 klukkan 22:35
Hjalti Jón Sverrisson 3 athugasemdir
Ekki allir sem vita það en nýlega varð ég spíra. Sannkölluð listaspíra. Ég hef nefnilega gengist til liðs við www.blog.central.is/ seven_ spirur og leyfi þér listrænu eðli mínu að blómstra.
Annars er afi minn áttræður. Teitið samanstendur af kanadabúum, hollendingum og íslendingum. Svona er fjölskyldan mín. Alþjóðleg og hress.
31. júlí 2006 klukkan 02:26
Hjalti Jón Sverrisson Engin athugasemd
..að ég sé fljótur að koma mér að ýmsustu hlutum. Bílaviðgerðir, klippingar og fleira svona stöff er eitthvað sem ég er gífurlega fær í að draga á langinn með að gera eitthvað í. Var að koma bílnum á sumardekkin rétt í þessu, ekki kominn nema 25.júlí. Mætti löggunni á leiðinni. Fékk sekt. Var á vetrardekkjum nefnilega. Sérstaklega venjulegt. Síðan fór maður með Die Hard í viðgerð loksins.
Mér líður samt mun betur með sjálfan mig þó að ég geti ekki sagt að ég eigi krónu. Né aur. Svona er það að vera klikkaður gaur.
25. júlí 2006 klukkan 22:21
Hjalti Jón Sverrisson 2 athugasemdir